This content is shown in its original language — a translation is not yet available.
Greiðsluleiðir
Greiddu fyrir bílastæði innan 48 klst í gegnum Autopay, með bankakröfu eða með áskrift.
Þjónustuleið 1 – Greitt innan 48 klst í gegnum greiðsluleiðir Autopay

Gulur bíll notar Autopay sem greiðsluleið notenda fyrir þjónustuna. Hægt er að nýta sér greiðsluleiðir Autopay innan 48 klukkustunda eftir að lagningu bílsins lýkur. Margar greiðslugáttir eru í boði:
- WWW.AUTOPAY.IO – Ávallt er hægt að fara inn á www.autopay.io og slá inn bílnúmer í reitinn og birtast þá ógreiddar lagningar bílsins í lista ef uppflettingin á sér stað innan 48 klst.
- AUTOPAY PRÓFÍLL – Með því að stofna Autopay prófíl getur þú skráð bíla þína í sjálfvirkar greiðslur. Einfaldasta og öruggasta leiðin fyrir þá sem nota bílastæði okkar að staðaldri.
- AUTOPAY APP – Autopay appið veitir sömu upplýsingar og vefsíðan, en þess utan er hægt að sjá stöðu bíla notanda í rauntíma hvort þeir séu á bílastæðum okkar eða ekki.
- QR POSI – Greiðsluvél á netinu er þjónustuleið sem hentar þeim sem vilja greiða áður en þeir yfirgefa bílastæðið – svipað og gert er í venjulegum greiðsluvélum.
Þjónustuleið 2 – Greiðsluleiðir Autopay eru ekki notaðar

GREITT MEÐ BANKAKRÖFU – Séu greiðsluleiðir Autopay ekki notaðar innan 48 klukkustunda frá lokum lagningar bílsins gefst kostur á að greiða fyrir þjónustuna með bankakröfu. Fyrir þjónustuleið 2 er innheimt fast gjald fyrir hverja lagningu sem ekki var greidd í þjónustuleið 1.
Þjónustuleið 3 – Áskrift

ÁSKRIFT – Á sumum bílastæðum okkar bjóðum við upp á áskrift að þjónustunni. Þá er innheimt mánaðargjald eða árgjald fyrir veitta þjónustu og aðgengi notenda er í samræmi við áskriftarleið.