Flotakerfi tengd við Autopay

eftir Gulur bíll

Autopay býður upp á API-tengingar við flotastjórnunarkerfi auk rafrænna reikningalausna fyrir fyrirtæki með 5–50 bíla.

Sum fyrirtæki hafa stóran flota af bifreiðum og nota flotastjórnunarkerfi til að halda utan um rekstur flotans. Autopay býður upp á lausnir fyrir slíka aðila.

Um er að ræða API-tengingu á milli flotakerfisins og Autopay. Núverandi notendur á þessari þjónustu eru margar helstu bílaleigur landsins.

Þessi þjónustuleið hentar fyrirtækjum sem eru með meira en 50 bíla í rekstri.

Við bjóðum einnig upp á lausn fyrir fyrirtæki sem eru með 5 til 50 bíla í rekstri. Lausnin byggir á rafrænum reikningum í gegnum rafræna skeytamiðlun. Þannig er hægt að hafa fullkomna yfirsýn yfir kostnað hvers bíls beint inn í bókhald viðkomandi.

Hafir þú áhuga á að nýta þér þessa lausn fyrir fyrirtækið þitt mátt þú senda okkur fyrirspurn hér.