Spurt og svarað

Algengar spurningar um þjónustu Gula bílsins. Finnir þú ekki svar við þinni spurningu, ekki hika við að hafa samband.

Bætist einhver kostnaður við ef ekki er greitt inn 48 tíma?

Ef notkun er ekki greidd innan 48 tíma í gegnum greiðsluleiðir Autopay frá því að bílastæðið er yfirgefið, bætist við greiðslugjald og reikningurinn er sendur í bankakröfu.

Er skilyrði að hafa greiðslukort á bak við Autopay.io aðgang?

Það er ekki skilyrði en bæði öruggast og einfaldasta leiðin. Að öðrum kosti er hægt að greiða í hvert sinn með því að fara inn á www.autopay.io og greiða með greiðslukorti.

Get ég haft fleiri en einn bíl á prófílnum mínum?

Já. Það er hægt að hafa eins marga bíla á prófílnum þínum og þér hentar.

Athugaðu samt að áskriftir á bílastæði eru yfirleitt fyrir einn samtíma bíl á stæðinu. Þú gætir því ekki lagt tveimur bílum á sama bílastæði fyrir eitt leyfi.

Hvað kemur á skjáinn ef ég er ekki með Autopay reikning?

Það kemur áskorun til ökumanns um að greiða innan 48 klst á www.autopay.io eða með bankakröfu eftir það.

Hvað kostar áskrift á bílastæðum í umsjón Guls bíls?

Á sumum bílastæðum okkar er hægt að kaupa áskrift fyrir bílinn þinn. Verðskrá þessara staða er hér: www.gulur.is/verdskra/

Hvar sé ég hvað ég skulda fyrir lagninguna?

Fyrstu 48 klukkustundirnar eftir lagningu getur þú séð upphæðina á autopay.io með því að slá inn bílnúmerið sem um ræðir.

Athugið að eftir 48 tíma frá því að lagningu lauk birtast ekki greiðslumöguleikar fyrir bílastæðið og viðkomandi fær sendan greiðsluseðil með greiðslugjaldi (sjá verðskrá).

Hvernig kemst ég í áskrift að bílastæði?

Á heimasíðu okkar www.gulur.is er hlekkur á áskriftarform (Áskriftarform).

Hvernig stofna ég autopay.io aðgang?

Farðu inn á heimasíðuna autopay.io og fylltu út allar umbeðnar upplýsingar. Einfaldast og öruggast er að skrá greiðslukort og stilla það á „Sjálfvirkar greiðslur“ þannig að greiðslur gangi sjálfvirkt fyrir sig.

Hvernig virkar gjaldtakan?

1. Þegar ekið er inn á bílastæðið er bílnúmer lesið með myndavélum og tímaskráning hefst.

2. Þegar ekið er út af bílastæðinu er bílnúmer lesið og tímaskráning stöðvast. Gjaldtaka er reiknuð út frá tímalengd lagningar.

Valmöguleikar til greiðslu

Greiða sjálfvirkt

Með skráðu greiðslukorti á vefsíðunni þinni á Autopay.io ekur þú bara inn og út af bílastæðinu og greiðir sjálfvirkt fyrir þjónustuna. Kvittanir eru á vefsíðunni þinni á Autopay.io.

Greiðið á netinu innan 48 klukkustunda

Hægt er að greiða á netinu fyrir bílastæðið innan 48 klukkustunda eftir að lagningu lýkur. Farið á Autopay.io og sláið inn bílnúmer og greiðið fyrir bílastæðið.

Greiða samkvæmt greiðsluseðli

Ef engin af hinum greiðsluleiðunum eru notaðar munt þú fá greiðsluseðil frá rekstraraðila bílastæðisins. Vangreiðslugjaldi er bætt við bílastæðagjaldið svo við mælum með að nota fyrstu greiðsluleiðirnar.