Ökumenn fæddir fyrir 1955 fá ekki vangreiðslugjöld
eftir Gulur bíll
Eigendur bíla sem fæddir eru fyrir 1955 fá ekki vangreiðslugjöld hjá Gulum bíl, jafnvel þótt Autopay-greiðsluleiðir séu ekki notaðar.
Árið 2024 innleiddum við hjá Gulum bíl reglu um að eigendur bíla sem fæddir eru fyrir 1955 fái ekki vangreiðslugjöld á bílastæðagjöld sín jafnvel þó ekki séu notaðar greiðsluleiðir Autopay. Hefur þetta vakið ánægju þeirra sem eiga etv. erfitt með að fóta sig í stafrænu nútíma greiðsluumhverfi.